Miðlar ehf.

útgáfa og markaðsráðgjöf

Miðlar ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í útgáfu á blöðum og kynningarefni fyrir fyrirtæki og félagasamtök. Miðlar ehf. býður einnig alhliða þjónustu í markaðsmálum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.

Hafðu samband

Okkar þjónusta

Við höfum áratugareynslu og fjölþætta þekkingu á útgáfu- og auglýsingamálum og getum aðstoðað fyrirtæki og félagasamtök við að ná til markhópa sinna með skilvirkum og skemmtilegum hætti.

Markaðsráðgjöf og miðlun

Við getum séð um markaðsherferðina þína. Við getum afmarkað markhóp, sett upp birtingaáætlun, hannað auglýsingar og birt þær, þar sem hentar þinni vöru, hvort sem er á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum eða öðrum stafrænum miðlum – svo sem helstu leitarvélum. Við sjáum til þess að þú sjáist þar sem markhóp þinn er að finna.

Útgáfa og textagerð

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af samfélagsmiðlunum – við getum séð um ljósmyndun og textagerð og tryggjum að fyrirtæki þitt sé lifandi á samfélagsmiðlum. Við sjáum einnig um útgáfu á hvers kyns blöðum og kynningarefni frá a til ö. Við getum haft umsjón með ritstjórn og efnisöflun, ljósmyndun, hönnun, umbroti og samskiptum við prentsmiðju og dreifingu.

Grafísk hönnun

Við bjóðum upp á hvers kyns grafíska hönnun, svo sem auglýsingagerð, hönnun vefsíðna, fyrirtækjamerkja, bréfsefna, og hvers kyns kynningarefnis og markpósta. Við hönnum samræmt útlit fyrirtækis þíns á samfélagsmiðlum og veitum ráðgjöf um ímynd fyrirtækisins.

Hver erum við

Valdimar Birgisson

Valdimar Birgisson

Valdimar Birgisson hefur starfað við sölu og markaðstörf við fjölmiðla í áratugi á flestum stærri miðlum. Umsjón blaða, öflun auglýsinga og styrkja ásamt umsjón með markaðsstarfi eru hans styrkleikar.

Sími 775 9050 · valdimarb@gmail.com

Aldís María Valdimarsdóttir

Aldís María Valdimarsdóttir

Aldís María er grafískur hönnuður og markaðssérfræðingur að mennt. Aldís hefur verið sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður síðan 2009 og hefur mikla reynslu af markaðsmálum. Aldís er með gott auga fyrir nýjum tækifærum í markaðsmálum og hönnun.

aldisvaldimars@gmail.com

„Það er mér ekkert nema ánægjan að mæla með Valdimar Birgissyni við öflun auglýsinga. Hann tók að sér að afla auglýsinga í afmælisrit sem Leiðsögn – félag leiðsögumanna, gaf út árið 2022 í tilefni af 50 ára afmæli félagsins. Öll hans vinna við auglýsingaöflun gekk eins og í sögu, sem og innheimta gagna og samskipti við ritstjóra og prentsmiðju.“

Hafðu samband

Sendu okkur línu eða hringdu – við svörum fljótt.

Sími
775 9050
Netfang
valdimarb@gmail.com
Fyrirtæki
Miðlar ehf.
Samfélagsmiðlar
Senda tölvupóst